meet our students

Helena Þrainsdottir

 

Ég lét gamlan draum rætast og fluttist með dóttur minni 9 ára til Danmerkur og settist á skólabekk.   Esbjerg varð fyrir valinu þar sem ég nem Multimedia Design & Communication í Business Academy Southwest, og sé sko alls ekki eftir því. 

 

 Í stuttu máli er námið „þverfaglegt“, þar sem tekið er á fjórum aðalfögum:-Interaction (forritun o.fl.)-Design/Visualisation (hönnun o.fl.)-Organisation (stjórnun og viðskiptahliðin) -Communication (miðlun og markaðshliðin)Skólinn er mátulega stór fyrir mig, þú týnist ekki þar sem einn af mörgum nemendum og góð nálægð við kennarana.  Kennslustundirnar eru fjölbreytilegar og skemmtilegar þar sem unnið er mikið í hópum. Í Esbjerg er yndislegt að vera og þá sérstaklega með börn.  Sumarið kemur snemma og þá er stutt í notaleg strönd til að njóta sólarinnar á og baða sig í sjónum.  Það margt hægt að gera hér hvernig sem viðrar bara spurning hvernig þú nýtir veðrið, svo er Legoland  ekki langt frá, dýragarðar ofl..  Einnig er auðvelt að fá húsnæði hér og leigan er ódýr miðað við annars staðar í Danmörku og einstæðar mæður fá húsaleigubætur sem eru hálfvirði af leigunni.  Ekki má svo gleyma að hér eru hjálpsamir íslendingar boðnir og búnir að aðstoða við hvað eina þegar þess er þörf.

 

- Það versta sem maður getur gert er að reyna ekki, að vita hvað maður vill en gera ekkert í því, að eyða árum saman í að velta því fyrir sér hvort eitthvað hefði getað orðið að veruleika, .....

 

en vita það aldrei -David Viscott

 Helena Þrainsdottir

 

 

Freyja Leópoldsdóttir


Í febrúar árið 2008 ákvað ég að kíkja á árlega háskólakynningu og skoða það sem í boði var án þess að vera með eitthvað ákveðið í huga. Í norræna húsinu voru erlendir háskólar með kynningu og var einn sem heillaði mig mjög. Ég fór heim og var alltaf annað slagið með hugann við skólann þar til ég ákvað að skoða hann betur. Það varð úr að ég ákvað að prófa að sækja um þennan skóla sem staðsettur var í Esbjerg í Danmörku. Ég hafði aldrei farið til Danmerkur og aldrei heyrt um Esbjerg, sem þó er fimmti stærsti bær í Danmörku með um 85.000 íbúa, þar af um 200 íslendinga.

Með aðstoð Íslendinga á svæðinu kláraði ég umsóknarferlið, komst inn í skólann og ákvað að fara í heimsókn áður en endanleg ákvörðun um skólavist yrði tekin. Ferðina fór ég í maí 2008 og leist bara nokkuð vel á þennan vinalega bæ og það sem ýtti enn frekar á ákvörðun mína var sú vitneskja um að ég fengi pottþétt námsmannaíbúð og að leigan í Esbjerg er ekki há. Það skipti mig mjög miklu máli þar sem ég var að koma af vinnumarkaðnum og vissi að ég fengi tekjuskert námslán.

Í júlí fékk ég úthlutaðri fínni einstaklingsíbúð sem ég hafði sjálf sótt um, en því fyrr sem umsókn berst fyrir haustið, því meira úrval er. Íbúðin mín var gjörsamlega í garðinum á skólanum sem hentaði mjög vel meðan ég var að kynnast bænum.

Ég flutti út í byrjun ágúst eins og planið var og tók með mér búslóð frá Íslandi þar sem mínir útreikningar sýndu að það væri hagstæðara fyrir mig og hef ég aldrei séð eftir þeirri ákvörðun, enda íslenska krónan ekki sterkasti gjaldmiðillinn.

Skólinn er mjög fínn, dáldið gamaldags í útliti og ekki alveg eins og ég var búin að venjast frá Íslandi en kennslukerfið er frábært. Bekkurinn er ekki stór, um 20 manns með skiptinemum sem koma á hverri önn, og á bekkurinn sína heimastofu sem kennarnarni koma í. Námið er því persónulegt og þekkja kennararnir hvern nemanda, hans styrkleika sem og veikleika. Alltaf er hægt að ná tali af kennurunum, svo framalega sem þeir eru í skólanum.

Kennslan fer fram milli 8 og 14 á daginn, engar eyður eða þess háttar tímaþjófar og ef maður lítur á skólann sem vinnu – þá er fínt að vera í heimastofunni til 16/17, klára allt heimanám og eiga kvöldin út af fyrir sig. Þetta fyrirkomulag er frábært og ég hef aldrei átt eins mikinn frítíma, sem fer ekki í móral, eins og eftir að ég byrjaði í náminu.

Mikið er lagt upp úr hópavinnu og í fyrsta verkefni á fyrstu önninni er valið í hóp, en eftir það er nemendum frjálst að mynda hópa sem er mjög algengt að haldist út námið.  Verkefnavinnan snýst um alvöru fyrirtæki og verkefnin auka því á margvíslega þekkingu auk þess að gera nemendur betur undibúna fyrir vinnumarkaðinn.

Prófin eru tvisvar á ári eða í lok hverrar annar og eru þau samræmd eftir fyrstu önn, skrifleg 3 tíma próf þar sem öll gögn eru leyfileg. Eftir aðra önn eru munleg próf úr verkefni sem hópurinn gerir, aftur skrifleg eftir þriðjuönn og svo munnlegt eftir fjórðu önn.

Fjórða önnin er dálítið sérstök, en þá hefur nemandinn val um að fara í skiptinám, starfsnám eða vinna að eigin viðskiptahugmynd. Þarf nemandinn síðan að vinna að verkefni, með skilmálum, og verja það síðan munnlega.

Eftir fjórðu önn er útskrift – AP degree, eða Academy profession gráða, en eftir hana er hægt að halda áfram í Bachelor gráðu í eitt, eða eitt og hálft ár, allt eftir því hvaða skóli er valinn.

Árið sem ég hef þegar verið í Esbjerg hefur verið mjög lærdómsríkt og skemmtilegt, ég hef kynnst frábærum krökkum og lært að lifa öðruvísi heldur en á íslandi. Dvöl erlendis þroskar mann hiklaust og er frábær reynsla í reynslubankann.

Ég mæli hiklaust með Esbjerg og þá sérstaklega skólanum mínum, Erhvervs Akademi Sydvest fyrir alla, sama á hvaða aldri fólk er, því það er aldrei of seint að fara í nám!

 

Freyja Leópoldsdóttir

 

Esbjerg

Sp. Kirkevej 103 | 6700 Esbjerg | Tlf + 45 7613 3200 | mail vest@Opdater venligst din browser!easv.dk

Sønderborg

Ørstedsgade 53 | 6400 Sønderborg | Tlf + 45 7412 4141 | mail syd@Opdater venligst din browser!easv.dk